óhugnanleg þróun í augljósri ritskoðun?

Þó svo að menn hafi ákveðið að frá og með 1. jan skuli menn skikkaðir til að rita undir fullu nafni, líklega til að koma í veg fyrir óheftar tjáningar öfga og misyndismanna (?) þá er það hvergi nærri nóg. Einhver fann sig allaveganna knúinn til þess að henda út öllum tengingum í frétt þessari tengdri þar sem Ólafur afsakar sig með því að segjast hafa einungis veist að fólkinu í sjálfsvörn.

 

Hvað er að? og hvenær ætlar fólk að átta sig á fjölmiðlarnir allir með tölu hafa svo ekki verður um villst sett sig í lið með stjórnvöldum og bankaræningjum GEGN þjóðinni? 


mbl.is Mótmælendum ógnað á gamlársdag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FLÓTTAMAÐURINN

Þarna var Bláa Höndin greinilega að verki en í þetta skiptið voru helst til mörg vitni.

FLÓTTAMAÐURINN, 3.1.2009 kl. 01:07

2 Smámynd: Offari

Ég mun tjá mínar skoðanir með athugasemdum við þjóðþekkta menn. Þannig verða mín orð meira lesin en bloggfærslur mínar. Sem nú hafa verið drepnar.

Offari, 3.1.2009 kl. 01:14

3 Smámynd: Björn Gísli Gylfason

Maður bíður eiginlega bara eftir því að myndbandið sjálft hverfi líka sísvona

Björn Gísli Gylfason, 3.1.2009 kl. 01:18

4 Smámynd: Gunnar

Ég setti þær athugasemdir sem ég hef tengla í á http://truth.is/?p=870 - endilega senda mér ef þú ert með fleiri í history á vafranum þínum!

Gunnar, 3.1.2009 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband